12.04.1926
Efri deild: 48. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1565 í B-deild Alþingistíðinda. (1185)
61. mál, kirkjugjöld í Prestbakkasókn í Hrútafirði
Frsm. (Ingibjörg H. Bjarnason):
Mentamálanefnd þessarar hv. deildar hefir haft frv. þetta til meðferðar og komist að þeirri niðurstöðu, að ástæður þær, sem færðar eru fram með því í greinargerðinni, er frv. fylgir, nægi til þess að sanna, að hjer er um misrjetti og skakt fyrirkomulag að ræða, er frv. vill leiðrjetta þannig, að því er snertir kirkjugjöld hinna fjögra býla í Prestsbakkasókn í Hrútafirði, að fylgja einnig í þessu falli hinni gömlu kirkjurjettarreglu, „að gjald skuli til þeirrar kirkju greiða, sem maður á sókn til.“
Legg jeg það til fyrir hönd nefndarinnar, að frv. verði samþ. óbreytt.