25.03.1926
Neðri deild: 40. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1681 í B-deild Alþingistíðinda. (1340)

80. mál, veiting Sveinbirni Högnasyni embætti á Íslandi

Frsm. (Magnús Jónsson):

Jeg þarf eiginlega ekkert um þetta mál að segja.

Mentamálanefnd hefir einróma fallist á frv., og vill ganga það lengra að láta það ná til allra guðfræðinga frá erlendum háskólum. Jeg býst ekki við, að mótmæli komi fram frekar en í háttv. nefnd og skal ekki tefja þingið á lengri ræðu um þetta mál.