07.04.1926
Neðri deild: 47. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1722 í B-deild Alþingistíðinda. (1420)
26. mál, ritsíma og talsímakerfi
Halldór Stefánsson:
Jeg ætla að gera grein fyrir viðaukatillögum okkar þm. N.M. á þskj. 272, um línu frá Hjaltastað að Kirkjubæ og línu frá Egilsstöðum að Birnufelli.
Jeg skal þó áður leiðrjetta það, sem hv. 2. þm. Skagf. (JS) sagði víðvíkjandi Loðmundarfjarðarsímanum, sem samþ. var við 2. umr. fjárlagafrv. Hann sagði, að þessi sími væri ekki í símalögunum. Þetta er ekki rjett. Hann er þegar kominn í símalögin 1917. Þar er hann talinn 3. flokks símalína. Ástæðan til þess, að við flytjum þessa till., er sú, að á þingmálafundi að Kirkjubæ 18. jan. síðastl. var skorað á Alþingi að veita fje til þessara síma. En þar sem þessar línur eru ekki ákveðnar í lögum, þótti okkur ekki fært að bera fram tillögur um fjárveitingu, en berum þá aftur fram þessa viðaukatillögu við frv. það, sem nú er til umræðu.
Hinar almennu ástæður fyrir þessum tillögum eru þær sömu og fyrir hinum öðrum tillögum, sem bornar hafa verið fram, og fram hafa verið teknar af flm. þeirra, og vil jeg ekki þreyta háttv. deild á því að endurtaka þær. En hvað við kemur staðháttum og hinum sjerstöku þörfum og ástæðum fyrir till. okkar, þá vil jeg víkja stuttlega að þeim. Báðar hinar fyrirhuguðu stöðvar eru milli Lagarfljóts og Jökulsár; en alt frá efstu bygð Fljótsdalshjeraðs til sjávar er engin stöð milli þessara stórvatna. Á Kirkjubæ er prestssetur og almennur samkomustaður og fundastaður sveitarinnar. Prestakallið er þrjár kirkjusóknir, sem eru víðáttumiklar og illar yfirferðar vegna vatna og vegleysu. Er því mikil þörf á að ljetta viðskifti prests og safnaða með símasambandi; einnig að greiða fyrir sambandi við lækni.
Hvað viðkemur Birnufelli, þá er þar almennur fundastaður og samkomustaður fyrir Fellahrepp, og stöð þar fjelli mjög eðlilega við þörf sveitarinnar og einnig annara til að ná til þessa svæðis. Jeg tel líklegt, að báðar þessar stöðvar myndu bera uppi kostnaðinn við símalagningar þessar, því að símanotkunin myndi aukast á öllu þessu svæði milli Lagarfljóts og Jökulsár.
Á hinn bóginn eru báðar þessar línur stuttar, ca. 10–12 km. hvor; jeg get ekki sagt nánar um það, þar eð hvorug leiðin hefir verið mæld. Kostnaðurinn myndi verða 6–8 þús. kr., auk flutnings, sem hlutaðeigandi hreppar myndu annast, eftir því sem áætlað er um aðrar línur, miðað við vegalengdir.
Skal jeg svo ekki frekar fjölyrða um þetta. Vænti, að hv. deild sjái, að sjálfsagt sje að hafa stöðvar á þessu stóra svæði í miðju hjeraði, og þess vegna sje eðlilegt, að þessar tillögur, ásamt hinum öðrum tillögum, sem fyrir liggja, nái fram að ganga.