10.04.1926
Neðri deild: 50. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 580 í B-deild Alþingistíðinda. (143)
1. mál, fjárlög 1927
Atvinnumálaráðherra (MG):
Eins og jeg bjóst við, var hv. 2. þm. Reykv. (JBald) ekki ánægður með svör þau, sem jeg gaf honum um útvarpið. En þó hann væri ekki ánægður með þau, gat hann látið vera að afbaka þau. Hann sagði, að jeg hefði ekki svarað honum þeirri fyrirspurn, með hvaða heimild jeg hefði leyft, að taka mætti gjald af einstökum tækjahlutum. Jeg svaraði honum þessu á þá leið, að eins og taka mætti gjald af heilum tækjum eins mætti taka það af nokkrum hlutum þeirra. Þetta held jeg að þessi háttv. þm. ætti að þakka fyrir, ef hann kynni að meta það. Því að það er miklu verra fyrir útvarpsnotendur að þurfa altaf að kaupa heil tæki, þegar þá vantar aðeins eitthvað í þau.
Þá sagði þessi hv. þm., að það væri mjög misráðið, hversu stofngjaldið væri hátt. Þetta getur hann ekkert sagt um. Það er vitanlega altaf hægt að baða út öllum öngum hjer í þingsalnum og hrópa, að þetta og þetta eigi ekki svona að vera án þess að finna orðum sínum nokkurn stað. Nei, jeg get fullvissað þennan hv. þm. um, að alt það, sem gert hefir verið í þessu máli, hefir verið gert af einlægum vilja, svo víðvarpið mætti komast hjer sem fyrst á. (JBald: Þetta er gróðafyrirtæki). Nei, þetta er ekkert gróðafyrirtæki og form. útvarpsnotenda sagði mjer síðast í dag, að hann væri orðinn fyllilega viss um, að þetta væri ekki gróðafyrirtæki. Hjer er því um ekkert annað að tala af hálfu þessa háttv. þm. en hina venjulegu öfund yfir því, að hann heldur að aðrir græði, því að hingað til hefir hann engan áhuga sýnt fyrir þessu máli.
Hann vjek ennfremur að enska láninu. Því hefir reyndar hæstv. fjrh. svarað að mestu, en jeg vil þó bæta við það nokkrum orðum. Hann sagði meðal annars, að raunverulegir vextir af láni þessu væru fullir 9%.
Af láni þessu, sem var að nafnverði 500 þús. sterlingspund, fengum við útborgað 425 þús. sterlingspund. Á þeim tíma var íslenska krónan fallin svo, að hvert sterlingspund kostaði kr. 27–28. (Trh: Fjell hún svona alt í einu?). Nei, hún hafði fallið smátt og smátt, eins og kunnugt er, og um það bil, sem lánið var tekið, fjell hún. Ef gengið er út frá 27 kr. gengi á sterlingspundi, höfum vjer fengið upp úr enska láninu kr. 11475000,00. Nú er gengi á pundinu um 22 kr., og ef gengið er út frá, að það verði það meðalgengi, sem við þurfum að greiða meðan lánið stendur, þá þurfum við fyrir þessi 500 þús. sterlingspund að greiða 11 milj. kr. Við borgum því nærri ½ miljón minna en við fengum og losnum við afföllin. Þau hverfa við gengisbreytinguna. Eftir þessu hljóta raunverulegir vextir að vera talsvert undir 7%. En. hv. 2. þm. Reykv. sagði, að þeir væru fyllilega 9%. Jeg skal vitanlega viðurkenna, að þetta er ekki meiri fjarstæða en venjulega hjá þessum háttv. þm. Ef enska lánið er borið saman við dönsku lánin, þá verður það vegna gengismunarins miklu ódýrara en þau.
Vegna ummæla háttv. 1. þm. S.-M. (SvO) um styrk til markaðsleitar í Miðjarðarhafslöndunum, vil jeg geta þess, að mjer er ekki kunnugt um, að Gunnar Egilson sje heilsulítill, eins og honum sagðist frá. Jeg held þvert á móti, að hann, sem betur fer, sje mjög heilsugóður, eins og hann hefir lengst af verið. Ef þessi Karl Þorsteins á að fá alt fjeð, þá get jeg því síður gengið inn á tillöguna.