07.04.1926
Neðri deild: 47. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1733 í B-deild Alþingistíðinda. (1430)

26. mál, ritsíma og talsímakerfi

Hákon Kristófersson:

Það eru aðeins örfá orð. Jeg vil benda á það, að meiri hl. samgmn. átti fund í morgun, en jeg varð að fara burtu og átti því ekki þátt í því, sem þar gerðist.

Viðvíkjandi því, að það sje alls ekki ákveðið, hvenær línurnar verði lagðar, þó þær verði samþyktar nú, skal jeg geta þess, að ef svo er, þá sje jeg ekkert á móti því að samþykkja þær.