11.05.1926
Neðri deild: 76. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1790 í B-deild Alþingistíðinda. (1523)
92. mál, bæjargjöld í Reykjavík
Frsm. minni hl. (Jakob Möller):
Það liggur hjer fyrir breytingartillaga sú, sem um var rætt við 2. umræðu og þá var gerð grein fyrir. Jeg sje ekki ástæðu til að endurtaka hjer þær umræður og þau rök, sem þá komu fram, og geri ráð fyrir, að öllum hv. þdm. sjeu ljósar ástæðurnar til þess, að þessi brtt. kom fram. Það, sem hjer er farið fram á, er beinlínis ívilnun frá bæjarins hálfu. Jeg get ekki gengið inn á, að þetta sje rjettmæt krafa, að fara fram á það, að þessar fasteignir sjeu undanþegnar þessu gjaldi. Jeg vil benda hv. deild á það, að hvort sem þessar fasteignir verða fleiri eða færri, sem verða undanþegnar, má búast við, að umráðamenn þeirra komi fram með fleiri kröfur til bæjarins. Jeg held því fram, að ef alt er tekið með í reikninginn, þá sje þetta gjald í lögunum frá 1924 síst of hátt. Jeg sje svo ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta. Það þýðir ekki að koma fram með till. um það, hvernig þessi gjöld skuli innheimt, og verður að fara um það eftir samkomulagi við hlutaðeigendur.