14.05.1926
Neðri deild: 78. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 2070 í B-deild Alþingistíðinda. (1730)

125. mál, seðlaútgáfa

Fjármálaráðherra (JÞ):

Af því umr. um þetta frv. hljóta að snúast um einstakar greinar þess, þá vil jeg að þessu sinni aðeins leggja til að frv. fái að ganga til 2. umr., (KlJ: Ekki til nefndar?) því að frv. þarf að fá afgreiðslu. Jeg skal ekki setja mig á móti því að vísa því til nefndar, ef fært þykir að afgreiða það alt að einu áður en þingi verður slitið.