14.05.1926
Neðri deild: 80. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 2082 í B-deild Alþingistíðinda. (1749)

125. mál, seðlaútgáfa

Jörundur Brynjólfsson:

Það er aðeins um þetta eina atriði, sem jeg drap á við 2. umr. málsins. Mjer finst, að þar sem Íslandsbanki hefir ekkert óskað eftir því að vera laus við að draga inn þá upphæð sem honum er áskilið með lögum, þá muni meir en nægja, að hann verði undanþeginn því að draga inn ½ milj. Leyfi jeg mjer því að leggja fram skriflega brtt.