27.03.1926
Neðri deild: 42. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 54 í C-deild Alþingistíðinda. (1915)
52. mál, hafnarlög fyrir Reykjavíkurkaupstað
Sigurjón Jónsson:
Jeg vil upplýsa það, að eins og nú er ástatt, eru gjöldin til annara hafna en Reykjavíkur jafnrjetthá og til hennar. T. d. hefi jeg hjer fyrir mjer reglugerð fyrir Ísafjarðarhöfn, þar sem ákveðið er, að hún hafi haldsrjett í skipum fyrir gjöldum sínum. En þegar ein höfn fær lögveð í skipunum, er óhjákvæmilegt, að aðrar hafnir fái það einnig. Jeg vil aðeins benda á þetta til athugunar, en hefi annars ekki ákveðið, hvernig jeg nota atkvæði mitt í þessu máli.