09.04.1926
Efri deild: 46. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 74 í C-deild Alþingistíðinda. (1950)

27. mál, verslunarbækur

Jóhann Jósefsson:

Jeg verð að halda fast við það, sem jeg hefi áður sagt, að frv. þetta sje með öllu gagnslaust, þótt segja megi kannske líka, að það sje meinlaust. En jeg álít, að það sje hlutverk þessarar hv. deildar að sía úr það óþarfasta af því frumvarpavastri, sem fyrir Alþingi kemur, og í þeirra tölu tel jeg þetta frv.