11.03.1926
Neðri deild: 28. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 213 í C-deild Alþingistíðinda. (2037)

22. mál, skipting Gullbringu- og Kjósarsýslu í tvö kjördæmi

Bernharð Stefánsson:

Það urðu mjer vonbrigði, að hv. þm. hefir ekki lagt fram þá brtt., sem hann kvaðst við 2. umr. ætla að flytja. Vil jeg ekki fara að endurtaka ástæðurnar fyrir því máli, en aðeins spyrja forseta, hvort hann muni taka til grein, þótt aðeins komi skrifleg brtt. Vil jeg þá leyfa mjer að biðja um örstuttan frest til þess að koma fram með breytingartillöguna.