01.05.1926
Efri deild: 64. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 814 í B-deild Alþingistíðinda. (210)
1. mál, fjárlög 1927
Frsm. (Eggert Pálsson):
Jeg þarf ekki að segja mörg orð. Ræða hv. 1. landsk. (SE) snerist um tvent: list og landbúnað, og þóttist hann þar æðsti dómari í hvorutveggja, enda þótt hann hafi lítið sem ekkert fengist við list og alls ekki neitt við landbúnað. Jeg álít því, að hann hafi á hvorugu vit. Hinsvegar kynni maður að geta vænst þess, að hann hefði eitthvert vit á fjármálum, eftir því, sem aðalstarfi hans er háttað nú. Hann hefði trauðlega lagt annað eins kapp á að komast í bankastjórastöðuna, ef hann hefði ekki fundið köllun hjá sjer til þess starfs frekar en annars. (SE: Nýi sáttmáli!).