24.04.1926
Neðri deild: 61. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 507 í C-deild Alþingistíðinda. (2215)

83. mál, útrýming fjárkláða

Hákon Kristófersson:

Jeg verð að lýsa því yfir sem nefndarmaður, að nefndin hefir ekkert á móti því, að málið sje tekið af dagskrá. Jeg vil ekki væna nokkurn mann um, að hann sje með þessu að tefja fyrir málinu.