05.05.1926
Neðri deild: 70. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 657 í C-deild Alþingistíðinda. (2296)

39. mál, stöðvun á verðgildi íslenskra peninga

Forseti (BSv):

Þess er óskað mjög fastlega, að mál þetta verði tekið af dagskrá, og þar sem von er á nál. og sennilega brtt., ætla jeg að verða við þeirri ósk. Er þá málið hjer með tekið út af dagskrá, en verður fyrsta mál á dagskrá á morgun, ef nál. verður þá komið.

Forseti tók málið af dagskrá.