07.05.1926
Neðri deild: 73. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 833 í B-deild Alþingistíðinda. (231)
1. mál, fjárlög 1927
Hákon Kristófersson:
Mjer þykir hlýða að gera grein fyrir væntanlegu atkvæði mínu.
Hv. fjvn. hefir sætt ámæli fyrir að hafa samþykt fjárlagafrv. óbreytt eins og það nú liggur fyrir. Jeg ætla hvorki að þakka nje vanþakka hv. nefnd meðferð fjárlaga á þessu þingi; gerðir hennar liggja undir dóm alþjóðar. En þakkarvert er það þó, að hún vill nú ekki, að fjárl. verði gerð verri en orðið er.
Jeg neita því, að jeg sje ánægður með gerðir hv. nefndar, þótt jeg nú neyðist til að greiða atkv. með till. hennar.
Það er neyðarúrræði að þurfa að slaka til fyrir hv. Ed. um úrlausn fjármála. Jeg get ekki verið sammála hv. frsm. fjvn. (ÞórJ), að í þeirri deild eigi sæti menn gætnari um fjármál. Jeg neita því algerlega, að taka beri þá nokkuð fram yfir okkur hina. Þar sem nú þegar eru komnir tugir þúsunda króna í fjárlögin, sem þjóðin væri bættari með, að niður fjellu, þá vil jeg ekki ganga með þeim, sem vilja enn auka við.
Hv. 2. þm. Reykv. (JBald) tók fram, að stjórnin mundi telja sjer heimilt að greiða fjárupphæðir utan fjárlaga, eftir að hafa átt makk við einstaka þingmenn og þingflokka og fengið samþykki þeirra. Jeg mótmæli, að slíkri aðferð sje heitt, þar sem þing er haldið á hverju ári. Engin heimild er til slíks, nema borið sje undir þingið.
Jeg fylgi hv. nefnd, að samþykkja frv. eins og það liggur nú fyrir, af því að jeg tel engar líkur til, að það verði lagað að neinu leyti. Jeg veit, að svo margir standa með nefndinni um þetta, að ekki þarf að efa úrslitin, og jeg tel það vel farið. Annars mundi frv. fara öllu verra úr deildinni en það kom.