10.05.1926
Neðri deild: 75. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 759 í C-deild Alþingistíðinda. (2336)
39. mál, stöðvun á verðgildi íslenskra peninga
Klemens Jónason:
Þrjú til fjögur þing hefir gengismálið verið til umr., og hafa þær umr. verið bæði langar og flóknar, og þó lítið á þeim að græða. Er málið að miklu leyti enn jafnóljóst. það er og ekki nema eðlilegt, að umr. verði miklar um slíkt mál. Jeg verð þó að segja, að þeim hafi nú verið stilt mjög í hóf, einkum þegar þess er gætt, hvernig gengismálinu var komið á síðast liðnu hausti. Jeg vil ekki láta tækifærið ónotað, þar sem jeg var í meiri hl. fjhn., er samdi nál. í fyrra í gengismálinu, að lýsa yfir því, að jeg er afaróánægður með aðgerðir stjórnar og gengisnefndar í þessu máli. Og jeg vil ekki stuðla að því, að slíkt komi fyrir aftur. Þetta finn jeg mjer skylt að taka fram. Annars er skoðun mín í þessu máli kunn, bæði af því, sem stendur í nál., meiri hl. og af atkv. mínu við 2. umr. En skoðun mín er í stuttu máli sú, að stuðla að því að halda í krónuna eins og hún nú er, en reyna svo að hækka hana varlega, smátt og smátt, upp í gullverð.
Meiri hl. fjhn. bar fram við 2. umr. dagskrá, sem feld var með 15:12 atkv. Nú er komin fram ný dagskrá frá hv. þm. Borgf. (PO). Mun mega líta svo á, að hún miði að því sama og dagskrá okkar. En jeg verð þó að segja, að hún er svo teygjanleg, að jeg hygg, að lítið sjé á henni að byggja. Ef út í það er farið, geta hlutaðeigandi aðiljar teygt hana alveg eins og þeir vilja. En jeg býst samt við, að hún hafi byr í deildinni, og þar sem hún fer í líka átt og dagskrá meiri hl., þá vil jeg bæta svo úr, að hún verði aðgengilegri. Kem jeg því með brtt. við hana þess efnis, að orðið „veruleg“ falli burt. Vona jeg, að hæstv. forseti (BSv) taki hana til greina. Og verði hún samþ., mun jeg greiða atkv. með dagskránni, annars á móti.