19.04.1926
Neðri deild: 57. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 875 í C-deild Alþingistíðinda. (2409)

6. mál, lærði skólinn í Reykjavík

Klemens Jónsson:

Jeg hefi greitt atkvæði með fyrstu greinum þessa frv., en þar sem aðalgreinar þess hafa fallið, hlýt jeg að líta svo á, að frv. sje þar með alt fallið, samkv. gamalli þingvenju. Því hefi jeg neitað að greiða atkvæði um hinar síðari greinar, og mun gera svo enn.