05.05.1926
Neðri deild: 70. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 876 í C-deild Alþingistíðinda. (2415)

6. mál, lærði skólinn í Reykjavík

Frsm. meiri hl. (Magnús Jónsson):

Það virðist óviðkunnanlegt, þar sem hæstv. forsrh. (JM) er viðbundinn í hv. Ed. og getur ekki verið viðstaddur hjer, að umr. fari fram um þetta mál, og þar sem þessi ósk kemur fram frá meir hl. mentmn., þá sje jeg ekki neina ástæðu til að verða ekki við þeirri ósk, að taka málið af dagskrá.