25.02.1926
Neðri deild: 14. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 841 í B-deild Alþingistíðinda. (242)

17. mál, fjáraukalög 1925

Fjármálaráöherra (JÞ):

Háttv. 2. þm. Reykv. (JBald) sagði, að jeg hefði hlakkað yfir því, að hv. fjvn. hefði tekið upp af sjálfsdáðum ferðastyrk biskups. En jeg gerði ekki annað en þakka nefndinni fyrir að hafa borið fram till. Og jeg vil mega halda því áfram að þakka þingnefndum fyrir þær till., sem þær bera fram til bóta á stjfrv. mínum, án þess að leita til þess leyfis hjá hv. 2. þm. Reykv.