05.05.1926
Neðri deild: 70. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 878 í C-deild Alþingistíðinda. (2420)

6. mál, lærði skólinn í Reykjavík

Fjármálaráðherra (JÞ):

Jeg leyfi mjer að óska þess fyrir hönd stjórnarinnar, að málið verði tekið út, og það því fremur sem sá ráðherra, sem málið heyrir undir, er ekki viðlátinn. Vænti jeg fastlega, að hæstv. forseti verði við slíkri ósk, samkvæmt þingvenju.