06.05.1926
Efri deild: 68. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1159 í C-deild Alþingistíðinda. (2618)

106. mál, hæstiréttur

Jóhannes Jóhannesson:

Jeg vil taka það fram, að hv. þm. hefði átt að athuga það í tíma, að koma með þetta mál nógu snemma á þingtímanum. Álít jeg því, að öll ábyrgðin hvíli á honum, en ekki allshn., á því, hvort málið nær framgangi á þessu þingi eða ekki.