29.04.1926
Neðri deild: 65. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1197 í C-deild Alþingistíðinda. (2629)

81. mál, Landsbanki Íslands

Forseti (BSv):

Frá 9 háttv. þdm. hefir mjer borist svolátandi krafa:

„Með skírskotun til 43. gr. þingskapanna krefjast undirritaðir þingmenn þess, að frv. til laga um Landsbanka Íslands verði tekið á dagskrá neðri deildar á næsta fundi, eftir að atkv. hafa verið greidd um þessa kröfu vora.“

Ásgeir Ásgeirsson, Þorleifur Jónsson, Sveinn Ólafsson, Klemens Jónsson, Tryggvi Þórhallsson, Halldór Stefánsson, Bernharð Stefánsson, Pjetur Þórðarson, Ingólfur Bjarnarson.