05.05.1926
Neðri deild: 70. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1335 í C-deild Alþingistíðinda. (2657)

81. mál, Landsbanki Íslands

Fjármálaráðherra (JÞ):

Jeg var hræddur um þetta, að einhver bæði um, að síðasta málið yrði tekið af dagskrá líka, en það er óforsvaranleg meðferð á tíma þingsins, og þar sem stjórnin á enga sök á, að næstsíðasta málið var tekið út af dagskrá, vil jeg, ef hæstv. forseti leyfir, gera grein fyrir brtt við þetta frv.