05.05.1926
Neðri deild: 70. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1337 í C-deild Alþingistíðinda. (2662)

81. mál, Landsbanki Íslands

Fjármálaráðherra (JÞ):

Jeg vil taka það fram, að hv. þm. hafa haft allan þann tíma, sem þeim er ætlaður samkvæmt þingsköpum til þess að athuga þetta mál. Dráttur á því verður óhjákvæmilega til þess að lengja þingtímann, ef málið á á annað borð að ganga fram á þessu þingi, en það er undir undirtektum hv. Ed. komið.