27.02.1926
Neðri deild: 16. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 849 í B-deild Alþingistíðinda. (268)

5. mál, myntsamningur Norðurlanda

Fjármálaráðherra (JÞ):

Af því að hæstv. forsrh. (JM) er ekki viðstaddur, get jeg gefið þær upplýsingar, að Ísland hefir gengið inn í myntsamning Norðurlanda og sent þar að lútandi tilkynningu. Og út af því, sem háttv. frsm. (JBald) sagði, vil jeg geta þess, að eins og ljóst er af efni frv., eru í þessum viðbótarsamningi einungis ákvæði um skiftimynt, en öll samningsákvæði um gullmynt standa óbreytt.