08.05.1926
Neðri deild: 74. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1436 í C-deild Alþingistíðinda. (2698)

81. mál, Landsbanki Íslands

Tryggvi Þórhallsson:

Jeg tek fastlega undir tilmæli háttv. þm. A.-Sk. (ÞorlJ), formanns Framsóknarflokksins, því jeg tel það liggja í augum uppi, er slík dagskrá og þessi er komin fram, að flokkurinn sem heild þurfi að bera saman ráð sín um hana, og tel jeg því sjálfsagt, að hið umbeðna fundarhlje verði veitt.