08.05.1926
Neðri deild: 74. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1437 í C-deild Alþingistíðinda. (2705)

81. mál, Landsbanki Íslands

Ásgeir Ásgeirsson:

Jeg skal ekki skifta mjer af deilunni um það, hve langt fundarhlje sje hæfilegt að gefa, en jeg vil láta þess getið, að þar sem jeg og fleiri eru hæstv. stjórn sammála um frv., munum við ekki óska eftir þingrofi út af því frv., sem við viljum koma fram. Jeg gæti því gjarnan greitt atkvæði strax um dagskrána, en hinsvegar þætti mjer sanngjarnt að veita nokkurn frest, fyrst óskin er fram komin.