08.05.1926
Neðri deild: 74. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1438 í C-deild Alþingistíðinda. (2706)

81. mál, Landsbanki Íslands

Jón Baldvinsson:

Jeg vil leyfa mjer að geta þess, að það stendur svo á um stjórn míns flokks, að hún er ekki hjer innan þingveggjanna. Jeg þarf því að ná sambandi við menn úti í bæ, og það tekur talsverðan tíma, og þykist jeg ekki geta komist af með minna en klukkutíma hlje.