08.05.1926
Neðri deild: 74. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1443 í C-deild Alþingistíðinda. (2716)
81. mál, Landsbanki Íslands
Ásgeir Ásgeirsson:
Það er að vísu rjett hjá háttv. þm. N.-Þ. (BSv), að jeg jeg hafði orð á því á síðasta þingi, að mál eitt, sem þá lá fyrir — það var frv. um ríkislögreglu — mætti ekki afgreiðast nema það væri borið fyrst undir þjóðina. En hinu hefi jeg aldrei haldið fram, að það ætti sem oftast að rjúfa þing og bera hvert mál undir kjósendur. Varalögreglan kom inn í þingið fyrirvaralaust og óundirbúið, órætt og óathugað af þjóðinni. En þetta mál hefir verið rætt oft og margsinnis. Og það er þó fyrst í kvöld, að fram kemur krafa um það, að rjúfa þing þess vegna.
Jeg veit ekki betur en að þjóðin bíði þess með óþreyju, að þetta mál verði afgreitt nú á þessu þingi. Jeg býst einnig við því, að dómur þjóðarinnar um það, hvort þetta þing er starfhæft, sje mjög undir því kominn, hver verða afdrif þessa máls.