10.05.1926
Efri deild: 71. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1446 í C-deild Alþingistíðinda. (2723)

81. mál, Landsbanki Íslands

Jónas Jónsson:

Jeg vil leyfa mjer að mótmæla þeim orðum hæstv. fjrh. (JÞ), að aðalorsök þess, hve þetta frv. kom seint fram, sje sú, að milliþingan. hafi ekki skilað áliti sínu fyr en langt var liðið á þingtímann. Milliþingan. skilaði áliti sínu í þingbyrjun, en svo fóru 14 dagar í að gera það að stjfrv., og hæstv. stjórn hefir ekkert gert til að flýta því í gegnum Nd. Jeg segi þetta til þess að það standi ljóst, að hæstv. stjórn sýnist ekki hafa haft áhuga á að koma þessu frv. í gegn.