16.03.1926
Efri deild: 29. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 19 í D-deild Alþingistíðinda. (2761)

47. mál, ríkisborgararéttur

Forsætisráðherra (JM):

Jeg verð að viðurkenna, að hjer er farið fram á mjög sanngjarnt mál og rjettmætt, og jeg þykist viss um, að tillagan verði samþ. Jeg get lýst því yfir, að jeg mun bráðlega koma fram með frv., sem fer í líka átt og lög þau, er sett hafa verið um ríkisborgararjett í þeim þremur löndum, sem hv. 4. landsk. (IHB) mintist á.