25.03.1926
Efri deild: 37. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 38 í D-deild Alþingistíðinda. (2783)

18. mál, sæsímasambandið við útlönd o.fl.

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Svo sem hv. deild er kunnugt, hefir þetta mál þegar farið gegnum hv. Nd., og var það samþ. þar nær athugasemdalaust. Samgmn. þessarar deildar hefir athugað tillöguna og vill leyfa sjer að leggja til, að hún verði samþ. óbreytt. Það hefir komið skýrt fram í nefndinni, að henni líkaði vel, hvernig tekist hefir til með samninga um hið nýja einkaleyfi Mikla norræna ritsímafjelagsins, og að hún vill alveg fallast á till. hæstv. stjórnar um þetta.