29.03.1926
Efri deild: 40. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 152 í D-deild Alþingistíðinda. (2853)

53. mál, tilfærsla á veðrétti ríkissjóðs í togurum

Ingibjörg H. Bjarnason:

Jeg skal játa það, að jeg er ekki lögfróð, en eins og jeg tók fram áðan, þá sje jeg ekki betur en að þetta geti skapað fordæmi, því það, sem einu sinni hefir komið fyrir, getur auðveldlega komið fyrir aftur.

Annars hafa umræðurnar um málið ekkert skýrt það fyrir mjer. Jeg stend því við það, sem jeg hefi þegar sagt, og greiði tillögunni ekki atkvæði.