11.05.1926
Neðri deild: 76. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 280 í D-deild Alþingistíðinda. (3004)
113. mál, slysatryggingariðgjald
Jón Baldvinsson:
Jeg fæ ekki sjeð, þrátt fyrir ræðu hv. þm. N.-Ísf. (JAJ), að þetta, sem þál. fer fram á, hafi stoð í lögum. Jeg fæ heldur ekki skilið, hvernig hæstv. stjórn getur tekið við þessari till., eins og hún er orðuð. Jeg vík að því sjerstaklega, af því að hæstv. ráðh. (MG) hefir ekki annað um þetta sagt en að hann áliti, að till. geti komið til atkv. Jeg álít hann alls ekki geta framkvæmt hana, svo framarlega sem hún er skilin eins og orðalagið bendir til. Jeg sje ekki betur en að það nái til hjer um bil allra sjómanna, að þeir hafi hlut af afla, þótt þeir líka vinni fyrir föstu kaupi. Þetta er það, sem fólst í frv. Þetta er það, sem felst í orðalagi þessarar till.
Hv. þm. N.-Ísf. setti sig nú á háan hest um það, að jeg liti svo á, að minn skilningur eigi að vera yfirþingsköp. Jeg hefi ekki gert annað en vísa til hæstv. forseta um skilning á þessu máli. Hann hefir ekkert sagt um það enn. Jeg bíð eftir hans úrskurði og býst við, að jeg verði að sætta mig við hann.
Rjett er það, að það eru ekki öll sömu ákvæði í till. og voru í frv. Það var talað um að breyta tillaginu. Það, sem stjórn slysatryggingarsjóðsins sagði í brjefi sínu til sjútvn., ber engan veginn að skoða sem úrskurð hennar. Hún taldi, að komið gæti til mála, að menn, sem eingöngu væru ráðnir upp á hlut, væru taldir sem útgerðarmenn og greiddu því gjald. Jeg ætla, að hún hafi notað orðin: „við hyggjum“.
Jeg skal ekki um það segja, hvort til muni vera einhverjir hásetar, sem geta fallist á það, sem hv. þm. N.-Ísf. benti á. En það er ákaflega lítil sönnun um almennan vilja sjómanna, þótt einhver einstakur maður hafi staðið upp og mælt fyrir þessu og slík till. hafi verið samþ. á einum þingmálafundi. Enda skilst mjer svo, að ef maður lítur á mannlegt eðli, þá vilji flestallir heldur losna við gjöld. Þar að auki er það skylda hjá öllum slysatryggingum víðast hvar, að það sje atvinnuvegurinn sjálfur, sem á að greiða iðgjaldið.
Það væri fróðlegt að heyra, að hve miklu leyti- hæstv. ráðh. (MG) treystir sjer til að framkvæma þessa þál., ef samþ. verður, samkv. orðalagi hennar.