12.05.1926
Neðri deild: 77. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 297 í D-deild Alþingistíðinda. (3037)

123. mál, launauppbót símamanna

Magnús Torfason:

Þar sem háttv. flm. (JakM) hefir lýst yfir því, að þessa þáltill. eigi aðeins að skoða sem yfirlýstan vilja Nd., ef samþ. verður, þá er engin hætta á því, að hæstv. stjórn muni fá bágt hjá deildinni síðar meir, þótt hún greiði þetta fje, allra síst þegar þess er gætt, að ekki er von á því, að miklar breytingar verði á skipun deildarinnar til næsta árs.