14.05.1926
Efri deild: 76. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 321 í D-deild Alþingistíðinda. (3072)

118. mál, rannsókn veiðivatna

Fjármálaráðherra (JÞ):

Jeg hefi aðeins það að athuga við formið, að jeg álít, að þingið geti ekki með þingsályktun heimilað stjórninni að verja fje úr ríkissjóði. Eftir stjórnarskránni þarf til þess veiting í fjárlögum eða aukafjárlögum, en jeg skil till. aðeins svo, sem Alþingi fyrir sitt leyti óski eftir, að stjórnin geri þetta, og vilji ekki átelja hana eftir á fyrir að taka þetta upp í fjáraukalög.