14.05.1926
Sameinað þing: 7. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 334 í D-deild Alþingistíðinda. (3092)
121. mál, þúsund ára hátíð Alþingis
Flm. (Ásgeir Ásgeirsson):
Vegna ummæla hæstv. fjrh. (JÞ) vil jeg lýsa yfir því, að jeg hafði borið till. undir nokkra íhaldsmenn áður en hún var borin fram, og tóku þeir vel í málið.
Við flm. höfum ekki sagt sundur friðnum. Við höfum aðeins viljað hlutfallslegt jafnrjetti milli flokkanna í nefndinni. Og sameinað Alþingi hefir skorið úr um það, að þeir skuli njóta þessa jafnrjettis. Jeg hygg, að það gildi, sem sameinað Alþingi hefir ályktað að gera, og að varhugavert sje fyrir heila flokka að skirrast við að fara eftir ályktunum þess. Það væri ekki til að auka traust og álit þessarar gömlu og virðulegu stofnunar. Með því að skorast undan þátttöku í nefndinni gera menn uppreisn gegn ályktunum Alþingis, ef það er heill flokkur, sem tekur sig saman um undanbrögðin. Sú leið er að vísu fær, en ekki samboðin öðrum en óvinum þingræðisins. Jeg ítreka því tilmæli mín til þeirra manna, er kosnir hafa verið í nefndina úr stjórnarflokknum, að þeir taki þar sæti. Sjerstaklega vil jeg beina þessum tilmælum til hæstv. forseta (JóhJóh), að hann láti sjer ekki á sama standa um heiður þingsins og ályktunarvald þess.