14.05.1926
Sameinað þing: 7. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 336 í D-deild Alþingistíðinda. (3097)

121. mál, þúsund ára hátíð Alþingis

Tryggvi Þórhallsson:

Jeg vildi aðeins benda hæstv. forseta (JóhJóh) á það, að kosið var á 20 seðla að 39, enda þótt ekki væri hægt að lesa á einum. Hefir því nefndin verið kosin af 20 þm., því að menn vita, að á hinum ógilda seðli hefir átt að standa A. Er þetta því meiri hl. þeirra þm., sem viðstaddir voru.