14.05.1926
Efri deild: 77. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 392 í D-deild Alþingistíðinda. (3126)

124. mál, sýslumenn og bæjarfógetar megi ekki eiga sæti á þingi

Sigurður Eggerz:

Jeg skal hafa sama formála eins og hv. 3. landsk. (JJ) og hæstv. forsrh. (JM) um að lengja ekki umr., en vil aðeins geta þess, að jeg álít kjörgengi og kosningarrjett dýrmætan rjett og vara því við takmörkunum á því sviði nema brýn nauðsyn beri til. Þykist jeg þá hafa lýst afstöðu minni til þessa máls.