05.05.1926
Efri deild: 67. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 556 í D-deild Alþingistíðinda. (3171)
100. mál, málshöfðun gegn Sigurði Þórðarsyni
Forseti (HSteins):
Jeg get í fljótu bragði ekki sjeð mikla ástæðu til að taka málið út af dagskrá, þegar búið er að ræða það svo lengi. Mjer heyrðist líka á ræðum þessara síðustu ræðumanna, að ekki geti orðið um samkomulag að ræða með nýja dagskrá. (JJ: Jeg geri formsbreytingu á aðaltill. Það kemur ekki dagskránni við í sjálfu sjer). Jeg gef 10 mínútna hlje, og að því loknu skal jeg gefa ákveðið svar um það, hvort málið verður tekið út af dagskrá.
Að loknu 10 mínútna fundarhljei mælti