04.05.1926
Neðri deild: 69. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 592 í D-deild Alþingistíðinda. (3226)

107. mál, mæling á siglingaleiðum

Jón Auðunn Jónsson:

Hæstv. atvrh, (MG) hefir nú gert öllum þeim hv. þm., sem að beiðnum þessum standa, góð skil, að svo miklu leyti sem hægt er, og þess vegna hygg jeg, að allir mættu því vel una að vísa þessu máli til stjórnarinnar með því fororði, að jafnt gangi yfir alla og að þeir fái þessar siglingaleiðir mældar svo fljótt sem kostur er.