05.05.1926
Neðri deild: 70. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 603 í D-deild Alþingistíðinda. (3242)

95. mál, lánveitingar úr Fiskveiðasjóði Íslands

Flm. (Jón Auðunn Jónsson):

Jeg vil benda á, að þessi leið kollvarpar alveg aðaltilgangi sjóðsins. Ef verja á fjenu til bryggjugerða og hafnarbóta í kaupstöðum, verður litlu eða engu varið til að efla fiskiveiðar og nýjungar í fiskverkun. Jeg vil ekki, að það fari fram hjá deildinni, um hvað greitt er atkv.