20.04.1926
Efri deild: 55. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 720 í D-deild Alþingistíðinda. (3383)

44. mál, útibú frá Stykkishólmi frá Landsbankanum

Fyrirspyrjandi (Halldór Steinsson):

Jeg þakka hæstv. stjórn þetta svar, sem var reyndar ekki á annan veg en jeg bjóst við. Jeg vil aðeins ítreka þá áskorun mína til hæstv. stjórnar, að hún hrindi þessu máli í framkvæmd sem fyrst, og jeg hefi fylstu von um, að svo verði, eftir ummælum hæstv. fjrh. (JÞ) að dæma.