10.05.1926
Neðri deild: 75. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 2407 í B-deild Alþingistíðinda. (3392)
Málshöfðun gegn þingmanni
Fjármálaráðherra (JÞ):
Út af ummælum hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) vil jeg segja það, að mjer hefði aldrei komið til hugar að biðja um leyfi deildarinnar til þess að lögsækja fyrir venjuleg stóryrði í þingræðum. Jeg legg það heldur ekki í vana minn að vera með rekistefnu út af því, sem sagt er um mig í blöðunum. En eftir því sem mjer voru flutt ummæli háttv. þm. Str. og eftir því, sem þingskrifararnir höfðu skrifað, þá hefir hann dróttað því að mjer, að jeg hafi framið glæp á þann hátt, að jeg hafi misnotað stöðu mína sem landsverkfræðingur til hagnaðar fyrir sjálfan mig. Jeg vil ekki og get ekki látið þessi ummæli á mjer sitja.
Vegna þessara aðdróttana hefi jeg sótt um leyfi deildarinnar til þess að mega lögsækja hv. þm. Str. Jeg vona, að hv. 1. þm. S.-M. og allir þdm. skilji, að þetta er alt annað en að vera hörundssár fyrir stóryrðum.
Fyrir slík afbrot sem þessi er lögð þung refsing í hegningarlögunum og að mínu áliti er hún sanngjarn mælikvarði á það, hversu menn líta á þesskonar afbrot.