14.05.1926
Efri deild: 78. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 2426 í B-deild Alþingistíðinda. (3436)

Starfslok deilda

forseti (HSteins):

Áður en jeg slít þessum síðasta fundi hv. deildar, vil jeg geta þess, að þær vonir, sem jeg ljet í ljós í þingbyrjun um góða samvinnu og starfsemi hafa fyllilega ræst. Nefndirnar í þessari hv. deild hafa unnið með alúð og elju og leyst verkefni sín vel og tiltölulega fljótt af hendi. Því er ómögulegt með nokkurri sanngirni að kenna þessari hv. deild, þótt þetta þing hafi dregist nokkuð lengur en vænta mátti eftir þeim málum, sem lágu fyrir. Að endingu vil jeg