06.02.1926
Sameinað þing: 1. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í B-deild Alþingistíðinda. (3454)

Kosning forseta

Forseti (JóhJóh):

Jeg þakka háttvirtum þingmeirihluta þann sóma, sem mjer er sýndur með því að vera kosinn í 8. sinn í þessa virðingarstöðu.

Kvaddi forseti sjer til aðstoðar sem fundarskrifara Jón Auðun Jónsson, þm. N.-Ísf., og ljet því næst fara fram kosningu varaforseta sameinaðs þings. Kosningu hlaut

Þórarinn Jónsson, þm. V.-Húnv., með 21 atkv. — Jakob Möller, 3. þm. Reykv., fjekk 5 atkv., Þorleifur Jónsson, þm. A.-Sk., 1 atkv., en 15 seðlar voru auðir.