15.03.1926
Efri deild: 28. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 927 í B-deild Alþingistíðinda. (425)
12. mál, kynbætur hesta
Jónas Jónsson:
Mig langar til þess að styðja hv. 1. landsk. (SE) lítið eitt í hans ströngu baráttu, því þótt málsstyður hans sje miklu betri en andstæðinganna, þá eru nokkrar líkur til þess, að hann lendi í minni hluta, einkum þegar sá fulltrúi, sem treysta hefði átt til þess að halda fram rjettindum kvenna, hefir alveg brugðist skyldu sinni. Og verð jeg að láta í ljós djúpa hrygð yfir því, ef þessi háttv. deild getur ekki skilist við þessi kosningamál kvenna þannig, að fult samræmi sje í. Hjer hefir nýlega verið samþykt frv., þar sem því var slegið föstu, að konur skyldu hafa sama rjett og sömu skyldur móts við karlmenn. Og þá er það beinlínis hlægilegt að gera þessa undantekningu. Jeg vil þá beina því til hæstv. atvrh., sem virðist þessu fylgjandi og hefir undirbúið kosningafrv., hvers vegna hann hafi ekki sett þar inn ákvæði um, að til skyldu vera fáeinar nefndir, sem konur skyldu ekki sitja í, þótt þær ættu að hafa jafnrjetti við karlmenn endranær. Þetta er fullkomlega hugsunarrangt, og þegar til atkvgr. kemur, vil jeg biðja um nafnakall, svo það sjáist, hverjir það eru, sem hjer vilja gera á hluta kvenþjóðarinnar.