10.04.1926
Efri deild: 47. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 935 í B-deild Alþingistíðinda. (439)

12. mál, kynbætur hesta

Guðmundur Ólafsson:

Jeg hefi ekki athugað þetta frv. vandlega í þeirri mynd, sem það nú er, en jeg sje, að hjer er um þó nokkrar breytingar að ræða. Vil jeg því mælast til þess, að málið sje tekið út af dagskrá til frekari athugunar.