16.04.1926
Efri deild: 52. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 979 í B-deild Alþingistíðinda. (510)

10. mál, bryggjugerð í Borgarnesi o. fl.

Frsm. (Sigurður Eggerz):

Jeg hefi álitið ástæðulaust að fara mörgum orðum um þetta frv., þar sem allir virðast sammála um það, að um mjög nauðsynlega hafnarbót sje að ræða, og leyfi jeg mjer þess vegna með tilvísun til nál., sem málinu fylgir, að leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt, og ennfremur að mælast til, að hæstv. stjórn haldi áfram á sömu braut í þessu efni og hún hefir byrjað á og hraði framkvæmdum þess svo sem föng eru á.