16.04.1926
Efri deild: 52. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 980 í B-deild Alþingistíðinda. (511)

10. mál, bryggjugerð í Borgarnesi o. fl.

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg finn ástæðu til að þakka hv. samgmn. fyrir skjóta og góða afgreiðslu á þessu máli, og skal jeg geta þess, að stjórnin mun láta fram fara rannsókn þá, sem nauðsynleg er, eins fljótt og hægt er, og svo sjá um framkvæmd verksins eins fljótt og því verður við komið.